Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
Fræknir flugmenn og "athugull" blaðamaður
26.3.2009 | 20:40
Mikið blessað lán var það nú að flugmennirnir slökktu á mótornum. Það er auðvitað ekkert grín að hafa þotumótor á fullu afli inni í stofu.
Líklega hefur atburðarásin ekki alveg verið á þessa leið, líklegra að blaðasnápurinn hafi "skriplað á skötu" við þýðinguna. Íslenskunni á Mogganum hefur farið skelfilega aftur síðan Styrmir og Matthías réðu þar ríkjum.
Flugvélarmótor féll á íbúðarhús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Úthljóðsbylgjur
21.3.2009 | 11:37
Nú þyrfti einhver sigldur og lesinn maður að koma til og útskýra fyrir okkur pöpulnum hvað úthljóðsbylgjur eru. Ég veit um útfjólubláar ljósbylgjur. Ég veit líka að það er hægt að birta myndir með hljóðbylgjutækni. Þannig sjá t.d. margir foreldrar börn sín í fyrsta skipti. Kannski eru úthljóðsbylgjur einhver bræðingur af þessu tvennu. Veit einhver? Eða hefur e.t.v. eitthvað skolast til í þýðingunni hjá blaðamanninum/konunni?
Flugvél Smiths í leitirnar? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Er enginn að tengja?
2.3.2009 | 20:37
Halló!!! Það eru að koma kosningar. Þá er nú tími til iðrunar. En fyrst konan er svona gráti næst að hafa staðið sig svona illa, af hverju er hún þá að bjóða sig fram á ný? Þetta kalla ég að kunna ekki að skammast sín.
Baðst afsökunar á mistökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sagan endurtekur sig
1.3.2009 | 16:16
Þeir héldu því fram á sínum tíma að Írakar gætu beitt efnavopnum með 45 mín. fyrirvara
Telja Írana geta smíðað sprengju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)